Pursuit Nurture Sequences
Archivoh
[TEST] Það styttist í heimsókn
May 26, 2025
Read text version
  Það styttist í heimsókn , Við hlökkum til að taka móti þér í Sky Lagoon von bráðar. Hér eru mikilvægar upplýsingar sem vert er að skoða til að tryggja að heimsóknin þín verði afslöppuð og endurnærandi. Innritun Við mælum með því að mæta tímanlega svo þú njótir til fulls. Við getum ekki ábyrgst tímann þinn ef mætt er 30 mínútum eftir bókaðan tíma. Snjallarmbandið þitt Við innritun færð þú afhent snjallarmband sem nýtist sem greiðslukort á baðstaðnum sjálfum og sem lykill að skápnum þínum. Við brottför fjarlægjum við allar kortaupplýsingar af armbandinu ásamt öllum greiðslum. Búningsaðstaða & sturtur Eins og á öllum íslenskum baðstöðum þá þurfa gestir að þvo sér án baðfata áður en haldið er til lónsins. Með Saman leiðinni hefur þú afnot af almennings búningsaðstöðu en með Sér leiðinni hefur þú afnot af sérútbúnum einkaklefa með sturtu og snyrtiaðstöðu. Læsta skápa finnur þú í báðum búningsaðstöðum ásamt handklæði til afnota. Munum að drekka vel Víðsvegar um baðstaðinn eru vatnsbrunnar til að koma í veg fyrir vökvatap en einnig er hægt að nálgast aðra drykki til kaups á Gelmir Bar. Hámarksneysla áfengra drykkja í lóninu eru þrír drykkir á hvern gest. Skjól Ritúal Gestir sem eiga bókaða Saman og Sér leiðina fá aðgang að Skjól Ritúalinu. Hverri heimsókn fylgir eitt ferðalag í gegnum Ritúalið. Athugið: Meðferðin er ekki innifalin í Pure Lite leiðinni. Smakk Bar & Keimur Café Fáðu sem mest út úr heimsókninni og kíktu á Smakk Bar eða Keimur Café. Veldu á milli nokkurra sérvalinna sælkerabakka á Smakk Bar eða komdu við í Keimur Café og fáðu þér gómsæta súpu og íslenskt bakkelsi í afslöppuðu umhverfi. Brottför Við brottför afhendir þú armbandið þitt við útgönguhliðið og staðfestir um leið allar greiðslur sem áttu sér stað á baðstaðnum. Við hlökkum til að taka á móti þér í Sky Lagoon innan örfárra daga og vonum að þessar upplýsingar hafi komið að góðum notum. Ef einhverjar spurningar vakna máttu endilega hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst á info@skylagoon.is eða í síma +354-527-6800. Sjáumst innan skamms! Finndu hugarró þar sem himinn og haf renna saman.   Staðsetning Vesturvör 44-48 Kópavogur Unsubscribe   Heimsóknin þín